Fara í efni

Bókasafnið er opið einn morgun í viku.

Ásta Rún tekur vel á móti gestum bókasafnsins.
Ásta Rún tekur vel á móti gestum bókasafnsins.

Nú hefur morgunopnun á Bókasafni Hrunamanna bæst við og verður bókasafnið því opið þriðjudaga 9-12 og 18-20 og miðvikudaga 16-18. Á morgunopnuninni verður heitt á könnunni og tilvalið að setjast niður, spjalla við aðra gesti safnsins og fletta bókum/tímaritum. Margar af nýjustu bókunum berast glóðvolgar úr prentun til okkar og tímaritin Hús og Híbýli, Vikan, Gestgjafinn og Litli Bergþór.

Allir eru ávallt velkomnir á bókasafnið.

Ef einhverjar spurningar vakna má alltaf hafa samband í síma 480-6628, senda tölvupóst á netfangið bokasafn@fludir.is eða í gegnum síðu bókasafnsins á Facebook.

Bestu kveðjur, Ásta Rún