Fara í efni

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir vorið 2024

Opnað hefur verið fyrirumsóknirí vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands. Kynningarfundur um sjóðinn verður haldinn á Teams 13. febrúar kl. 12:15 og verður hann auglýstur nánar síðar.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024 og skiptir því miklu máli að umsækjendur kynni sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur hans og markmið ásamt mati á umsóknum. Reglur sjóðsins eru að finna hér.

Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni þar sem markmið er skýrt og vel til vandað í umsókn er líklegri til að hljóta styrki.

Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki eitt markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnumumsóknarvef sjóðsins.Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum og þarf að hafa lögheimili á Suðurlandi. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekkieinkaaðgangi verkefnastjóra.Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.

Hægt er að fá ráðgjöf hjá byggðaþróunarfulltrúa Uppsveita Árnessýslu varðandi umsóknir í sjóðinn á netfangið lina@sveitir.is en einnig er hægt að fara inn á ráðgjafasíðu SASS og panta ráðgjöf.

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann5. mars 2024