Fara í efni

Gunnþór er nýr yfirmaður eignasjóðs, þjónustumiðstöðvar og úrgangsmála.

Á fundi sveitarstjórnar þann 1. nóvember 2023 var lagt fram minnisblað varðandi ráðningu yfirmanns eignasjóðs, þjónustumiðstöðvar og úrgangsmála. Þrjár umsóknir bárust um stöðuna og voru tveir einstaklingar teknir í viðtal.

Afgreiðsla sveitarstjórnar var svohljóðandi:
Sveitarstjórn samþykkir að ráða Gunnþór K. Guðfinnsson sem yfirmann eignasjóðs, þjónustumiðstöðvar og úrgangsmála.
Gunnþór er garðyrkjufræðingur að mennt auk þess að vera með diplómu í garðyrkjutækni frá Landbúnaðarháskóla Íslands og með próf í lífefldum
landbúnaði frá Svíþjóð. Auk þessa hefur hann tekið fjölda námskeiða varðandi störf sín. Gunnþór hefur áður gengt stöðu yfirmanns þjónustumiðstöðvar um
árabil hjá tveimur sveitarfélögum þar sem hann sinnti verkefnum mjög svipuðum þeim sem staða hans hjá Hrunamannahreppi mun krefjast. Hann hefur reynslu
af mannaforráðum, verkefnaskipulagi sem og gerð fjárhagsáætlunar.  Hann þekkir vel til stjórnsýslu og verkefna sveitarfélaga í gegnum fyrri störf sín.
Sveitarstjórn hefur yfirfarið umsóknir og kannað meðmæli og telur Gunnþór búa yfir þeirri reynslu og þekkingu sem starf þetta krefst. 

Gunnþór er boðinn velkominn í hóp starfsmanna Hrunamannahrepps en hann mun væntanlega taka til starfa í desember. 

Sveitarstjóri.