Fara í efni

Húsbyggingar hefjast við Fannborgartanga

Daði og Gunnar tóku fyrstu skóflustunguna að parhúsi í Byggð á bríkum.
Daði og Gunnar tóku fyrstu skóflustunguna að parhúsi í Byggð á bríkum.

Fyrsta skóflustungan að byggðinni við Fannborgartanga var tekin mánudaginn 18. september sl. af Daða Geir Samúelssyni sem ásamt Gunnari Kristni Haraldssyni hefur hafið framkvæmdir við parhús við götuna. Það var fallegt um að litast í hinu nýja hverfi þegar Daði vippaði sér upp í gröfuna og hóf fagmannlega framkvæmdir í hinu nýja hverfi.

Er þeim félögum óskað innilega til hamingju með upphaf framkvæmda og velfarnaðar í nýju hverfi.