Fara í efni

Húsnæðisáætlun 2024 samþykkt

Í Hrunamannahreppi er gnægð af heitu vatni !
Í Hrunamannahreppi er gnægð af heitu vatni !

Húsnæðisáætlun Hrunamannahrepps fyrir árið 2024 hefur verið samþykkt af sveitarstjórn.

Ljóst er að framundan er uppbygging á nýjum svæðum með tilheyrandi íbúafjölgun en íbúafjölgun er þegar  mun meiri en gert er ráð fyrir í gildandi aðalskipulagi þar sem vonir stóðu til að íbúar yrðu 900 árið 2032.  Í byrjun mars 2024 eru íbúar 935 og enn eru samt 8 ár eftir af því tímabili sem aðalskipulagið tekur til.
Miðað við forsendur í framlagðri húsnæðisáætlun er gert ráð fyrir því að íbúar verði komnir í um 1.000 um 2025/2026. Vert er að geta þess að lóðaframboð er gott, úthlutun við nýja götu, Loðmundartanga,  mun eiga sér stað í vikunni.  Svo er  nú líka rétt að halda því til haga að  innviðir Hrunamannahrepps eru sterkir og uppbygging fjölbreyttra atvinnutækifæra í farvatninu.

En áhugasamir eru hvattir til að kynna sér húsnæðisáætlun Hrunamannahrepps árið 2024  sem finna má á hlekknum hér fyrir neðan. 

Aldís Hafsteinsdóttir 
Sveitarstjóri. 

Sækja húsnæðisáætlun sem PDF