Fara í efni

Jólahátíð 2. desember

Jólasnjór og jólahátíð 2. desember. 
Myndina tók hún Else.
Jólasnjór og jólahátíð 2. desember.
Myndina tók hún Else.

Jólahátíðin sem haldin var í upphafi aðventu á síðasta ári tókst vel og nú endurtökum við skemmtunina.

Atvinnu, ferða og menningarmálanefnd stendur fyrir jólahátíð laugardaginn 2. desember milli kl. 14 og 16 í félagsheimilinu. Jólamarkaður, jólalög, ljósin tendruð á jólatrénu, notalegar veitingar og jólasveinarnir mæta á svæðið.

Þeir sem vilja taka þátt með einum eða öðrum hætti hafi samband við Örnu (arna@fludir.is) eða Ragnhildi (ragnhildur@fludir.is).

Takið daginn frá því þetta verður notaleg og góð stund.

Atvinnu, ferða- og menningarmálanefnd