Fara í efni

Jólamarkaður og jólagleði þann 2. desember

Sólin gægist yfir Miðfellið í Hrunamannahreppi á fallegum vetrardegi.
Sólin gægist yfir Miðfellið í Hrunamannahreppi á fallegum vetrardegi.

Jólamarkaður verður nú haldinn í annað sinn á vegum Atvinnu-, ferða og menningarnefndar Hrunamannahrepps, í samvinnu við fjölda einstaklinga og fyrirtækja. Markaðurinn verður í Félagsheimili Hrunamanna Laugardaginn 2. desember frá kl: 14:00 - 16:00.

Klukkan 14:00 verða ljósin tendruð á jólatrénu framan við húsið. Blaðrarinn kemur í heimsókn, jólasveinarnir og veitingar verða til sölu.