Fara í efni

Kvennaverkfall á Flúðum

Stofnanir og fyrirtæki hér á Flúðum voru annað hvort lokaðar eða með skerta starfsemi þar sem konur lögðu niður vinnu eða sinntu vinnu sinni með öðrum hætti en venjulega.   Með litlum fyrirvara var blásið til samstöðugöngu hér á Flúðum.  Nokkrar konur á öllum aldri mættu, bjuggu til baráttuskilti, og gengu svo fylgtu liði um miðbæ Flúða. Vakti hópurinn verðskuldaða athygli vegfarenda. Skiltin voru svo sett niður á hringtorginu áður en sameiginlega var sest niður og fylgst með baráttufundinum á Arnarhvoli.