Fara í efni

Tafir vegna fjárrekstra í Hrunamannahreppi 2023.

Hrunaréttir hefjast kl. 10:00, föstudaginn 8. september.
Hrunaréttir hefjast kl. 10:00, föstudaginn 8. september.

Fimmtudaginn 7.september og föstudaginn 8.september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra.

Fimmtudagurinn 7.september

Skeiða – og Hrunamannavegur F30 frá Tungufellsvegi og Hrunavegur F344 að Hrunaréttum frá kl 10:00 og fram eftir degi.

 

Föstudagurinn 8.september

Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Núpstúni frá kl 13:00 fram eftir degi.

Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Syðra-Langholti frá klukkan 13:00 og fram eftir degi

Hrunavegur F344 frá Hrunaréttum að Haukholtum frá klukkan 13:00 og fram eftir degi.

 

Réttað verður í Hrunaréttum föstudaginn 8. september og hefjast réttir klukkan 10.00

Fjallskilanefnd Hrunamannahrepps.