Fasteignagjöld
Fasteign telst afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.
Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Hrunamannahreppi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð. Álagningarstofninn er fenginn frá Þjóðskrá Íslands 31. desember ár hvert auk þess sem fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og ný mannvirki í hlutfalli við ársálagningu frá næstu mánaðarmótum eftir að þau eru skráð og metin í Fasteignaskrá. Fasteignaskattur fellur niður næstu mánaðamót eftir að mannvirki er afskráð í Þjóðskrá Íslands.
Hvernig nálgast ég Álagningarseðilinn minn?
- Ferð inná www.island.is
- Skráir þig inn á "mínar síður"
- Smellir á "Pósthólf"
- Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda" sem er að finna þar í listanum.
- Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf skjali eða prenta hann út.
Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Hrunamannahrepps í síma 480-6600 eða senda tölvupóst á svanhildur@fludir.is