Fara í efni

Fólk með fötlun

Sveitarfélögin Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur reka byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks.

Aðildarsveitarfélögin fela byggðasamlaginu skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög nr. 59/19992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum. Hlutverk byggðasamlagsins er að útfæra þjónustuna, fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar er nánar lýst í samþykktum Bergrisans bs.

Bergrisinn starfar á grundvelli eftirfarandi laga: laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og viðeigandi reglugerða.

Skrifstofa velferðarþjónustu Árnesþings í Laugarási er tengiliður sveitarfélaganna við Bergrisann.  Sími: 480-1180
www.arnesthing.is

 

Bergrisinn bs.

Viss