Ágúst fréttabréf Leikskólans Undralands komið út
14. ágúst
Fréttabréf Leikskólans Undralands er reglulega gefið út á rafrænu formi. Það er leikskólastjóri, Ingveldur Eiríksdóttir, sem hefur veg og vanda af gerð fréttabréfsins. Í nýjasta fréttabréfinu er fjallað um nýtt skóladagatal þar sem reynt er að samræma skólatíma leik- og grunnskóla með það fyrir augum að innleiða betri vinnutíma á leikskólanum. Einnig er fjallað um mikilvægi góðs mataræðis með skemmtilegum og fróðlegum hætti auk þess sem starfsmenn leikskólans í vetur eru kynntir.