Fara í efni

Ályktun sveitarstjórnar varðandi bráðaþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu

Við Litlu Laxá á fallegu sumarkvöldi
Við Litlu Laxá á fallegu sumarkvöldi

Á fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps þann 3. ágúst 2023 var lögð fram eftirfarandi bókun en undir sama dagskrárlið tengdist Díana Óskarsdóttir á fundinn í gegnum fjarfundabúnað og gerði grein fyrir þeim skipulagsbreytingum sem fyrirhugaðar eru í Laugarási. 

Bókun sveitarstjórnar var svohljóðandi: 

Sveitarstjórn Hrunamannahrepps skorar á stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) að tryggja íbúum og gestum Uppsveita Árnessýslu eins góða bráðaþjónustu og kostur er, sérstaklega í ljósi þess gríðarlega fjölda fólks sem hér dvelur daglega, allt árið um kring, bæði íbúar og ekki síður gestir svæðisins.

Greinargerð:
Samningum um bakvaktir lækna sem starfa í Laugarási hefur verið sagt upp frá og með 1. september næstkomandi. Eftir mánuð verður þar með enginn læknir á vakt í Uppsveitum Árnessýslu eftir að dagvinnu lýkur en læknir á bakvakt hefur hingað til sinnt bráðatilfellum sem komið hafa upp á svæðinu.

Sveitarstjórn Hrunamannahrepps telur afar mikilvægt að gott viðbragð sérhæfðra aðila sé til staðar í Uppsveitum Árnessýslu, að fyrsta viðbragð sé öflugt og að brugðist sé hratt og vel við þegar mínútur geta skipt sköpum.

Sveitarstjórn Hrunamannahrepps skorar á stjórnendur HSu að tryggja bráðaþjónustu í Uppsveitum, þar mætti til dæmis nefna mögulega viðveru sjúkrabifreiðar og sérhæfðra sjúkraflutningamanna sem sinnt gætu fyrsta viðbragði en slíkt væri algjörlega nauðsynlegt ef að fyrirhugaðar breytingar á bakvöktum verða að veruleika.

Öflug heilsugæsla er afar mikilvæg hverju samfélagi og því nauðsynlegt að henni sé sinnt eins og lög gera ráð fyrir. Það er sveitarstjórn Hrunamannahrepps kappsmál að heilsugæsla í Uppsveitunum sé með þeim hætti að hún geti sinnt þörfum íbúa og gesta svæðisins með sem allra bestum hætti og að öryggi þessa stóra hóps sé þar með vel tryggt. Sveitarstjórn hvetur einnig stjórnendur HSu til að skoða þann möguleika að læknavakt verði í boði seinnipart dags hér í Uppsveitunum.

Sveitarstjóri