Fara í efni

Atvinnuþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf á Flúðum

Sveppir eru framleiddir á einum stað á Íslandi, hér á Flúðum.  
Nýsköpun á sínum tíma af allra bestu gerð.
Sveppir eru framleiddir á einum stað á Íslandi, hér á Flúðum.
Nýsköpun á sínum tíma af allra bestu gerð.

Lína Björg, atvinnuþróunarfulltrúi uppsveita verður með viðveru í Ráðhúsi Hrunamannahrepps þriðjudaginn 8. október og veitir ráðgjöf til dæmis við styrkumsóknir, en opið er fyrir umsóknir í hinum ýmsu sjóðum um þessar mundir. Hægt er að mæta í Ráðhúsið milli kl. 9:00 og 15:00 og hitta Línu en gott er að mæla sér mót við hana hér í gegnum netfangið lina@sveitir.is