Fara í efni

Bleiki dagurinn 23. október

23. október er bleikur dagur á Íslandi
23. október er bleikur dagur á Íslandi

Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar í október ár hvert.
Á Bleika daginn eru íbúar Hrunamannahrepps eins og landsmenn allir hvattir til að sína verkefninu stuðning með því að klæðast bleiku og hafa bleika litinn í fyrirrúmi sem víðast.

Verum bleik - fyrir okkur öll
... berum bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og lýsum upp skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Bleiki dagurinn verður miðvikudaginn 23. október.