Fara í efni

Breytingar á Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Vetrarmynd frá Flúðum
Vetrarmynd frá Flúðum

Þann 1. mars tók til starfa breytt byggðasamlag undir nafninu Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. sem rekið er af Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi, Flóahreppi og Grímsnes- og Grafningshreppi og verður aðsetur þjónustunnar í Laugarási, Bláskógabyggð. 

Byggðasamlaginu verður stjórnað að tveimur deildarstjórum.  Annars vegar verður deildarstjóri velferðarþjónustu og hefur Anný Ingimarsdóttir, félagsráðgjafi, þegar verið ráðin til að sinna því starfi. Velferðarþjónustan sem er í boði í dag verður að mestu óbreytt. Hins vegar verður deildarstjóri yfir skólaþjónustunni. Sú staða hefur verið auglýst og heldur stjórn byggðasamlagsins utan um það ráðningarferli með Hagvangi.  Enn vantar þó fleira starfsfólk til að starfa innan skólaþjónustunnar hjá byggðasamlaginu og hafa þær stöður þegar verið auglýstar. 

Verið er að vinna hörðum höndum að passa upp á að þjónustunotendur finni ekki fyrir mikilli þjónustuskerðingu en aldrei er þó hægt að útiloka að notendur verði varir við jafn viðamiklar breytingar og hér um ræðir. 

Verkefnastjórn breytinganna hefur haft það að leiðarljósi við uppbyggingu á nýrri þjónustu að bæta skilvirkni og stytta boðleiðir með það fyrir augum að halda áfram að bjóða upp á góða þjónustu og er það því í forgangi að finna hæft fólk til að sinna störfum innan skólaþjónustunnar.

Tímabundið mun deildarstjóri skólaþjónustu, Anný Ingimarsdóttir,  einnig hafa umsjón með  skólaþjónustunni á þar til nýr deildarstjóri tekur til starfa.

Til upplýsingar er rétt að geta þess að starf deildarstjóra hefur verið auglýst og sóttu eftirtaldir 6 einstaklingar um starfið:

Gunnlaug Hartmannsdóttir, skólastjóri
Jónína Ósk Ingólfsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Kolbrún Haraldsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu
Nasteho Mohamed, atvinnuleitandi
Valdís Magnúdóttir, sérkennslustjóri
Þórunn Jóna Hauksdóttir, forstöðumaður og kennsluráðgjafi