Byggðaþróunarfulltrúi tekinn til starfa
Lína Björg Tryggvadóttir er nýráðinn byggðaþróunarfulltrúi og hefur hún aðsetur í Aratungu í Reykholti.
Lína starfar fyrir sveitarfélögin fjögur í Uppsveitum Árnessýslu; Hrunamannahrepp, Bláskógabyggð, Skeiða-og Gnúpverjahrepp og Grímsnes- og Grafningshrepp.
Starf er margþætt en Lína veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar og atvinnuuppbyggingar. Auk þess kemur hún að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og veitir hún því öllum sem til hennar leita upplýsingar um mögulega styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hún hefur góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.
Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þú þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni þá hafið hikið ekki við að hafa samband.
lina@sveitir.is
Farsími: 859-7870
Sími: 480 3009
Á www.sveitir.is má finna upplýsingar um fjölbreytta þjónustu á svæðinu.