Fara í efni

Aukafundur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Skóla- og velferðarþjónusta Árneþings bs. var stofnuð árið 2013 af sjö sveitarfélögum; Hveragerðisbæ, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi, Flóahreppi, Sveitarfélaginu Ölfusi og Grímsnes- og Grafningshreppi.

Hlutverk byggðasamlagsins er að veita þverfaglega og samræmda velferðarþjónustu til einstaklinga og fjölskyldna: Sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð, þjónustu við fatlað fólk og aldraða, barnavernd og aðra faglega þjónustu til stofnana og félagasamtaka á svæðunum. Tilgangur byggðasamlagsins er að samhæfa sem best þjónustu á framangreindum sviðum og nýta mannauð sem best í þágu íbúa í þéttbýli og dreifbýli svæðisins.

Þann 1. mars tók útganga Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss gildi og munu héðan af sveitarfélögin fimm sem eftir verða, þ.e. Uppsveitir og Flói reka byggðasamlagið áfram.  Þann sama dag var jafnframt haldinn aukafundur byggðasamlagsins þar sem samþykktur var nýr félagssamningur fyrir byggðasamlagið.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. verður með aðsetur í Laugarási í Bláskógabyggð.

Sveitarstjóri