Fara í efni

Byggðaþróunarfulltrúi verður til viðtals á Flúðum á morgun.

Lína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi verður á skrifstofu Hrunamannahrepps þriðjudaginn 11. febrúar 2025  en áætlað er að hún verði alla vega einu sinni í mánuði í Ráðhúsinu á Flúðum en hún er þó til viðtals alla virka daga og alltaf hægt að senda henni tölvupóst.

Starf byggðaþróunarfulltrúa er margþætt en Lína veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar og atvinnuuppbyggingar.

Auk þess kemur hún að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS).

Sérstök athygli er vakin á því að hún veitir höllum sem til hennar leita upplýsingar um mögulega styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hún hefur góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.  Núna er einmitt opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóðinn. 

Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þú þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni þá hikið ekki við að hafa samband við Línu í gegnum netfangið lina@sveitir.is .