Fara í efni

Lausar kennarastöður

Flúðaskóli auglýsir lausar stöður skólaárið 2024 – 2025

Umsjónarkennari á miðstigi 100% staða (afleysing í 1 ár)

Náttúrufræðikennsla á mið- og unglingastig 100% staða

Í Flúðaskóla verða tæplega 100 nemendur næsta skólaár. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Gildi skólans er virðing-vitneskja. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Við leitum að einstaklingum með kennsluréttindi í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, góðir í mannlegum samskiptum, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Störfin henta einstaklingum, óháð kyni
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2024.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lilja Arnardóttir, skólastjóri, í síma 4806612.
Umsókn ásamt ferilskrá skal send á netfangið johannalilja@fludaskoli.is