Fara í efni

Nýr tækjasalur og sjúkraþjálfun opnar á Flúðum

Í síðustu viku opnaði nýr tækjasalur í íþróttahúsinu á Flúðum. Íbúar hafa beðið spenntir eftir að hann yrði tekin í notkun og nú þegar hafa margir nýtt sér þessa góðu aðstöðu. Opnunartímar hafa einnig verið lengdir til muna.

Á sveitarstjórnarfundi þann 16. janúar sl. var svo samþykktur leigusamningur vegna rýmis fyrir sjúkraþjálfun í íþróttahúsinu á Flúðum. Samningurinn var svo undirritaður nú í morgun við Sigfríð Lárusdóttur sjúkraþjálfara, en hún er Hrunamönnum vel kunn enda búin að búa hér í sveit til langs tíma. Sigfríð hefur allt frá árinu 2013 óskað eftir því við sveitarfélagið að starfrækja sjúkraþjálfun hér á Flúðum. Núna við breytingarnar og hönnunina á nýja tækjasalnum var því haft samband við Sigfríð og í samvinnu við hana unnið að nánari útfærslu á aðstöðu og hönnun rýmisins.

Það er því fagnaðarefni að sjá þetta loks allt verða að veruleika og verður að segjast að við tökum vel á móti nýju ári með bættri aðstöðu og meiri þjónustu í heimabyggð.

Hrunamannahreppur óskar Sigfríð velfarnaðar í störfum sínum og óskar um leið sveitungum til hamingju með nýja aðstöðu og bætta þjónustu.