Pésinn kemur út í lok janúar
Pésinn, fréttabréf Hrunamannahrepps, verður nú gefinn út 34. árið í röð. Hefur blaðið komið út nokkurn veginn einu sinni í mánuði í allan þennan tíma. Verður slíkt að teljast afskaplega mikil þrautsegja og eiga þau hrós skilið sem haldið hafa ritinu úti í allan þennan tíma.
En nú eru blikur á lofti þar sem að Pósturinn hefur hætt að dreifa fjölpósti eins og Pésanum í öll hús. Því þarf sveitarstjórn nú að ákveða með hvaða hætti hinu ómissandi fréttabréfi verður best komið til íbúa á næstu misserum. Verður ákvörðun um það tekin á fundi sveitarstjórnar þann 18. janúar. Allar góðar ábendingar eru vel þegnar hvað það varðar.
En Pésinn mun koma út í janúar og verða dreift til íbúa með eins góðum hætti og okkur er kostur.
Á meðan þá viljum við minna á að eldri Pésa má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins með því að smella hér.
En þeir sem vilja koma skilaboðum til íbúa, eða luma á skemmtilegum fréttum í næsta Pésa mega endilega sendu okkur allt slíkt fyrir 11. janúar nk.
Sveitarstjóri