Fara í efni

Byggðaþróunarfulltrúi í Uppsveitum Árnessýslu

Byggðaþróunarfulltrúi í Uppsveitum Árnessýslu

Sveitarfélögin Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa laust til umsóknar starf byggðaþróunarfulltrúa.

Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðlu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar, auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við sveitarfélögin fjögur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Einnig starfar fulltrúinn með samstarfshópi samtakanna og öðrum byggðaþróunarfulltrúum á Suðurlandi.

Um er að ræða allt að 100% starfshlutfall og hefur viðkomandi starfsaðstöðu á skrifstofum Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.

Hlutverk byggðaþróunarfulltrúa

Veita ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála með sérstaka áherslu á umsækjendur og
styrkþega Uppbyggingarsjóðs Suðurlands

  • Aðkoma að fræðslu og þjálfun fyrir frumkvöðla
  • Vinna við söfnun og greiningu upplýsinga á sviði atvinnu- og byggðamála
  • Vinna að upplýsingamiðlun um stoðkerfi atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og byggðamála
  • Hvetja hagaðila innan svæðis til verkefnaþróunar og þátttöku í samstarfsverkefnum
  • Styðja við stefnumörkun sveitarfélaganna á sviði byggðamála og framfylgir einstökum aðgerðum
  • Vinna að og þróa svæðisbundin verkefni að eigin frumkvæði og í samstarfi við hagaðila
  • Vinna að innleiðingu og eftirfylgni sameiginlegrar atvinnustefnu sveitarfélaganna
  • Vinna að ferðatengdum málum, m.a. ráðgjöf og upplýsingamiðlun og þátttaka í faghópi sveitarfélaga á Suðurlandi og Markaðsstofu Suðurlands
  • Aðkoma að fjölmenningarmálum, þ.m.t. gerð móttökuáætlunar
  • Viðkomandi vinnur í samstarfi við oddvita og sveitarstjóra sveitarfélaganna fjögurra

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða ráðgjöf æskileg
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð tölvufærni og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
  • Frumkvæði í starfi og samstarfsfús
  • Hæfni í að tileinka sér nýja þekkingu og miðla henni áfram
  • Þekking á nærsamfélaginu og áhugi á að efla sitt tengslanet

Æskilegt er að viðkomandi hafi fasta búsetu í Árnessýslu og geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst 2023. Umsókn skal skilað stafrænt á Alfreð (www.alfred.is) og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veita Ásta Stefánsdóttir (asta@blaskogabyggd.is) 480-3000 og Þórður Freyr Sigurðsson (thordur@sass.is ) 480-8200.