Fara í efni

Leikskólinn Undraland auglýsir eftir sérkennara og leikskólakennara

Leikskólinn Undraland, Flúðum auglýsir eftir sérkennara og leikskólakennara til starfa

Í Undralandi eru um 40 nemendur frá 18 mánaða aldri á tveimur.

Leikskólinn nýtur góðs af einstaklega fallegu umhverfi, góðu útinámssvæði og hinni rómuðu veðursæld á Flúðum.

Vel er búið að leikskólanum af hálfu sveitarfélagsins og nýtur hann góðs samstarfs við foreldrasamfélagið sömuleiðis. Við skólann starfar samstilltur hópur með alls konar reynslu og þekkingu sem nýtist vel í leikskólastarfinu.

Leiðarljós okkar í Undralandi er
umhverfið okkar og umhyggja.

Við leitum að áhugasömum leikskólakennurum til þess að starfa með okkur í því að efla leikskólann okkar með metnaðarfullu starfi og fólki sem hefur áhuga á því að vinna með börnum – og fullorðnum, í leik og starfi. Umsækjendur þurfa að vera sveigjanlegir og ráðagóðir, með ríka samkennd og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Við leitum að fólki sem hefur faglegan metnað og áhuga á þróunarstarfi menntastofnana.

Fram undan eru spennandi tímar í Undralandi, Flúðum þar sem starfsmenn geta komið að þróun skólans til framtíðar. Skóladagatal skólans er að stærstum hluta samræmt dagatali Flúðaskóla sem gerir leikskólann að enn ákjósanlegri vinnustað.

Við hvetjum áhugasamt fólk, af öllum kynjum, til að sækja um. Ef ekki næst að ráða fagmenntaða leikskólakennara, þá ráðum við leiðbeinendur til starfa. Í boði er sem nemur tveimur stöðum og möguleiki er á bæði hlutastörfum sem heilum. Kaup og kjör fara eftir samkomulagi sambands íslenskra sveitarfélaga við sveitarfélögin, en nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra.

Umsóknir skal senda rafrænt með ferilskrá og greinargerð um umsækjanda; áhugasvið, styrkleika og sýn viðkomandi á leikskólastarfið, á netfang skólans eða í gegnum undraland.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. sept 2023

Áhugasöm hafi samband við:
Elmu Jóhannsdóttur
undraland@undraland.is 4806620