Fara í efni

Vörðukórinn heldur sitt árlega Baðstofukvöld

Vörðukórinn heldur sitt árlega baðstofukvöld í félagsheimili Hrunamanna á Flúðum föstudaginn 2.febrúar kl 20:30.

Kappkostað er að bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá og að sjálfsögðu býður þessi matglaði kór upp á veitingar, auk þess sem barinn verður opinn.

Uppsveitarfólk er þekkt fyrir að skemmta sér og öðrum og verður þetta kvöld einginn undartekning á því. Setið verðir til borðs og notaleg stemming, gleði og gaman í fyrirrúmi.

Anna Helga Guðmundsdóttir frá iðu kemur og syngur nokkur lög og spilar undir á Ukulele.

Sérstakur gestur er einginn annar en hinn ástsæli Pálmi Gunnarsson sem tekur nokkur lög með hljómsveit kórsins.

Vörðukórinn tekur nokkur lög að venju.

Miðaverð er 3500 krónur.