Fara í efni

Útboð - Hrunamannahreppur óskar eftir tilboðum í verkið Hrunamannavegur 3, heilsugæslustöð, frágangur og innréttingar

Útboð: 

Hrunamannahreppur óskar eftir tilboðum í verkið Hrunamannavegur 3, heilsugæslustöð, frágangur og innréttingar.

 

Útboðsgögn verða afhent af Eflu Suðurlandi en áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is

Verklok eru 31. júlí 2025.

Verkið felst í frágangi, smíði og uppsetningu innréttinga í óinnréttað húsnæði að Hrunamannavegi 3 á Flúðum, þar sem fyrirhugað er að hefja starfsemi heilsugæslustöðvar.

Um er að ræða lagningu allra lagna, s.s. frárennslislagna, neysluvatnslagna, hitalagna, loftræsilagna og raflagna. Setja upp létta milliveggi, innihurðir, kerfisloft og gólfefni ásamt nýjum gluggum og útihurð.

Helstu magntölur eru:
Léttir veggir     350 m2
Málun                  1000 m2
Gólfefni              370 m2
Kerfisloft            370 m2
Innihurðir           25 stk

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 11. nóvember 2024. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Guðmund Hjaltason hjá Eflu Suðurlandi með tölvupósti á netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupós.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps Akurgerði 6, 845 Flúðir fyrir kl.11:00 miðvikudaginn 11. desember 2024, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Sveitarstjórinn í Hrunamannahreppi