Lífshlaupið hefst á miðvikudaginn!
05. febrúar
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna.
Markmið þess er að hvetja landsmenn til að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi en stuðst er við ráðleggingar frá Embættis landlæknis um hreyfingu.
Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 150 mínútur á víku. En í Lífshlaupinu er miðað við 30 mínútur á dag fyrir fullorðna.
Í ár er síðan nýr keppnisflokkur fyrir Hreystihópa 67+ sem er ánægjuleg viðbót.
Hér má finna allt um Lífshlaupið https://lifshlaupid.is/