Fara í efni

Tafir vegna fjárrekstra í Hrunamannahreppi.

Fé kemur fallegt af fjalli þetta árið.  Myndin er tekin af fé Hrunamanna þann 10. september 2024.
Fé kemur fallegt af fjalli þetta árið. Myndin er tekin af fé Hrunamanna þann 10. september 2024.

Tafir geta orðið á umferð á Skeiða og Hrunamannavegi frá Tungufelli að Hrunaréttum, um Kirkjuskarð, fimmtudaginn 12. september frá kl: 10:00-18:00. Föstudaginn 13. september kl:12:00 og fram eftir degi má búast við töfum á umferð vegna fjárrekstra frá Hrunaréttum.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi.

Sveitarstjóri