Fara í efni

Viðvera byggðaþróunarfulltrúa í Hrunamannahreppi

Lína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi, verður í Ráðhúsi Hrunamannahrepps miðvikudaginn 26. mars.

Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og aðstoð við nýsköpunar-, atvinnuþróunar- og menningarverkefni, meðal annars með leiðsögn um styrkjamöguleika, þróun hugmynda og næstu skref í framkvæmd verkefna.

Þeir sem vilja hitta á Línu hér í Ráðhúsinu á Flúðum geta sent póst á póstfangið lina@sveitir.is til að panta tíma.