Fara í efni

Tíminn líður hægt - tónlistarhátíð helguð meistara Bob Dylan.

Tíminn líður hægt er tónlistarhátíð sem helguð er meistara Bob Dylan.
Þetta er þriðja Dylan hátíðin sem aðstandendur hennar standa fyrir, að þessu sinni í flottu félagsheimili Hrunamanna að Flúðum. Fyrsta Dylan hátíðin var haldin á Skagaströnd (Veltandi steinn) og sú síðari í Iðnó í Reykjavík (Tímarnir líða og breytast).
Heiti hátíðarinnar í þetta sinn er sótt í lagið Time passes slowly á plötunni New morning sem út kom árið 1970. Lagið dregur upp mynd af friðsælu og nánast draumkenndu lífi í sveitinni (fjöllunum), þar sem ekkert þarf að gerast í flýti, andstæða hins hraðskreiða og krefjandi lífs sem flestir þekkja – og þá er viðeigandi að halda hátíðina á friðsælum Flúðum í Hrunamannahreppi.

Hátíðin er haldin á 84 ára afmælisdegi Dylan, 24. maí 2025. Hún hefst síðdegis á laugardegi með tónlistarflutningi og barsvari um líf og tónlist Dylan og um kvöldið heldur skipulögð tónlistardagskrá áfram. Á sunnudeginum fer fram Dylan messa í Hrunakirkju en um messuhaldið sér sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson sóknarprestur. Í messulok verður boðið upp á kaffi og margrómað bananabrauð að hætti Beatty Zimmerman, móður Dylans.

Meðal flytjenda sem koma fram eru:
* Slow train – er þekktasta og elsta starfandi Dylan band landsins.
* Chris Foster – er snillingur í þjóðlagatónlist sem hann flytur af mikilli fingrafimi og túlkun hans á perlum Dylans er einstök.
* Sverrisson Hotel – sem sérhæfir sig í engu og spilar allskonar, en hefur tekið ástfóstri við tónlist Dylan.
* Þrír englar og þreyttur hestur – stofnuð af áhugafólki um Bob Dylan og tekur fyrir minna þekkt lög og gerir að sínum.
* Sr. Henning Emil Magnússon – er einn af okkar helstu Dylan-sérfræðingum flytur gestum fróðleik á kvölddagskránni.
* Tónlistarfólk úr héraði og fleiri.

Dagskrá og nánara skipulag verður kynnt síðar – miðasala fer fram á Tix og við innganginn.