Fara í efni

Ágúst fréttabréf Leikskólans Undralands komið út

Myndin er tekin þegar börnin í leikskólanum gengu á Miðfell núna í vor.
Myndin er tekin þegar börnin í leikskólanum gengu á Miðfell núna í vor.

Fréttabréf Leikskólans Undralands er reglulega gefið út á rafrænu formi.  Það er leikskólastjóri, Ingveldur Eiríksdóttir, sem hefur veg og vanda af gerð fréttabréfsins.  Í nýjasta fréttabréfinu er fjallað um nýtt skóladagatal þar sem reynt er að samræma skólatíma leik- og grunnskóla með það fyrir augum að innleiða betri vinnutíma á leikskólanum.  Einnig er fjallað um mikilvægi góðs mataræðis með skemmtilegum og fróðlegum hætti auk þess sem starfsmenn leikskólans í vetur eru kynntir.

Endilega lesið fréttabréfið hér.